Getur einhver útskýrt fyrir mér....

Hvað í fjandanum "Fjármálaeftirlit" er?

Ef það er ekki til að veita eftirlit með fjármögnunarfyrirtækjum og lánum þeirra, auðkýfingum og auðæfum þeirra eða bönkum og starfsemi þeirra?

Hvert var eiginlega hlutverk fjármálaeftirlitsins?

Ekki brygði mér mikið ef stórfelldar mútuþægnir innan fjármálaeftirlitsins kæmu í ljós.


mbl.is FME skoðaði aldrei gengislánin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Þeim var mútað og það er bannað að segja með hverju....

Óskar Arnórsson, 26.6.2010 kl. 08:46

2 Smámynd: Gísli Sigurður

Skugginn felur sig best sjálfur.

Gísli Sigurður, 26.6.2010 kl. 10:52

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það liggur fyrir í gögnum frá Fjármálaeftirlitinu frá 2007 að SP Fjármögnun hafði hvorki starfsleyfi til að versla með gjaldeyri eða gengistryggð verðbréf, né heldur framvirka samninga sem fyrirtækið fjármagnaði sig með, engu að síður aðhafðist stofnunin aldrei neitt gegn fyrirtækinu. Þegar þetta uppgötvaðist af óháðum aðilum í fyrra og byrjað var að kalla eftir skýringum frá stofnuninni, þá brást hún við með því að fjarlægja umrædd gögn af vefsíðu sinni. Frekari umleitan skilaði sér svo í sífellt meiri undanbrögðum, útúrsnúningum og beinlínis feluleik af hálfu stofnunarinnar. Það er spikfeitur og slímugur maðkur í mysunni þarna!

Guðmundur Ásgeirsson, 26.6.2010 kl. 23:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband